goggar.bloggar.is
24.08.2005 17:50:43 / rakelr

Síííðasta bloggið!!Image and video hosting by TinyPic

Jæja ég er komin heim og ætla nú bara að kasta smá kveðju til ykkar áður en ég hætti þessu bloggeríi;)

Mikið lifandi skelfingar ósköp er gott að vera komin heim!:haha::haha:

Síðasta vikan í Köben var algjört æði! Jónína og mamma og co. voru öll úti, og heill hellingur sem við gerðum8)

En þetta sumar var FRRRRÁBÆRT í alla staði og ég sé sko ekki eftir þessu þó að maður komi soldið blankur heim;) ;)

En nú tekur bara endalaus vinna við fram að jólum og þá ætlum ég og Jói til New York að versla pínu og ætli maður skelli sér svo ekki bara í skóla eftir áramót:D

En...

Rakel kveður:klikk:


» 89 hafa sagt sína skoðun

14.08.2005 20:58:27 / rakelr

20 / 20 !

Fleiri myndir komnar inn frá síðustu viku; matarboðinu hjá Magga og helginni!:D

Föstudagskvöldið: Mamma og pabbi Sigrúnar buðu okkur í mat og hann var hrikalega góður, sá besti sem ég hef fengið í allt sumar!! Svo horfðum við bara á spólu og sonna höfðum það kósý um kvöldið. Jáá svo vöknuðum við um morguninn og þá biðu okkar amerískar pönnukökur með öllu tilheyrandi, það var ekkert smá gott, samt ekki alveg morgunmatur sem ég gæti hugsað mér oft;)

Laugardagskvöldið: Ég, Svana, Sigrún, Maggi, Gunni og Edda vorum hér heima í gúddí fíling og fórum svo á einhvern bar þar sem vinur hans Gunna var að Dj-ast, svoo bara Lades þar sem Svana varð að fá sér einn Pina Colada áður en hún fór heim..:haha: Jájá svo bara gekk nóttin fyrir sig eins og vanalega

...Lades, Pina Colada, borðið OKKAR...
...pörin héldu snemma heim á leið (ekta Danir)...
...Mikið dansað, alltaf góða tónlist á Lades!...
...PUlsubarinn um 5 leytið, franskur heitur hundur audda!;)...
...Hálftíma leit að Taxa, labbað heim á endanum...
...og svo hrúgað í rúmið og allir í kássu, eins og vanalega;)...
Jáá alltaf gaman í Danmörku:haha:

Pottþétt síðasta færslan mín, á þessari síðu allavega;)

Kvittið nú einu sinni í gestabókin svona í lokin;) Lifið heil og takk fyrir mig;);)

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.08.2005 11:18:20 / rakelr

Jiminn...

Soldið langt síðan síðast...;) Mér fnnst bara leiðinlegt að blogga orðið…:^) Ég held ég fari að hætta því bráðum;) Ekki svo margir dagar í heimkomu mina og ekki nenni ég að blogga á Íslandinu svo þetta verður örugglega með síðustu færslunum… 8|

Jáhá það var aldeilis gaman í Aarhus hjá Beggu systir og co. Hún lilla mín er orðin alltof stór og algjört rassgat. Stubbarnir voru aðal áhorfsefnið þessa helgina, og jú ásamt Aðþrengdum eiginkonum. Pæling, akkuru aðþrengdar eiginkonur?? Desperate = örvæntingafullar (? Ekki satt?) Houswifes ( ekki beint eiginkonur er það?););)
Annars var þetta tjill helgi, við systurnar héldum okkur við Lambrusco en strákarnir í bjórnum og ekkert lítið, hhuummm svona ca 20 á dag!!!;)
Lét inn nokkrar myndir þaðan!:D

Fatou hringdí mig í gær, æðislegt að heyra í stelpunni!:D Allt gott að frétta af henni heyrðist mér. Hún allavega bauð mér vinnu í Retro Smáralind í vetur, núna er ég alveg lost, veit ekkert hvaða vinnu ég ætla að taka.:( Spurning hvort maður nennir að vinna í búð allan daginn alla daga…:$

Síðasta vikan í vinnunni minni, komin með nett ógeð af skúringum:klikk:

Svana er að fara heim á laugardaginn svo við erum að nýta síðustu dagana í botn!!:haha: Maggi, Edda og Gunni buðu mér Sigrúnu og Svönu í mat í fyrrakvöld. Það var mjöööög gaman og geggjaður matur, Maggi bara snilldar kokkur!!:haha: Það var alveg aðalréttur, eftirréttur, vín með matnum og alles sko!! Svo enduðum við bara allar á dýnum á gólfinu í pínu mini íbúðinni þeirra, svaf í hvaa… svona einn og hálfan tima áður en ég mætti fersk í vinnuna…8|

Á föstudaginn ætlum við svo að hafa smá stelpu-tjill-spólu kvöld heima hjá Sigrúnu og elda svo brunch um morguninn..;)
Svo er það lokadjamm með Svönu á laugardaginn, verðum að gera e-ð svakalegt..!

ROSA stutt í mina, 12 dagar eða e-ð, tíminn flýgur bókstaflega, er að pæla að eyða síðustu krónunum í föööt og koma blönk heim, hvernig lýst ykkur á það?;) hehe...:haha:

L8ER, kannski...;)

» 89 hafa sagt sína skoðun

02.08.2005 20:51:30 / rakelr

Hæ hó!!

Það var hrikalega gaman á laugardaginn!!:D Ég, Sigrún og Svana byrjuðum kveldið hjá Svönu bara stelputal útí eitt! Fórum svo í bæinn ætluðum á Stengade en var þá ekki bara e-ð electronic kvöld sem var ekki alveg sem við nenntum. Svo við enduððum hvergi annarsstaðar en á Lades.:haha: Og fengum okkur borð alveg útí horni og vorum það í mesta spassakasti ever. Sjá myndir!!!;) Það var snilld!! Annars er vikan bara búin að fara í leti og búðarferðir, svoo gaman að eiga smá pening! Svo var ég að fá fríkort frá skattinum sem er snilld! Bara 8% skattar!:D Á morgun erum við að fara í e-ð vinnuparty hjá Svönu, eintómir Svíar víst sem hlusta víst bara á Jazz..8| En maður verður nú samt að fara með Svönu þar sem Mikki kallinn verður þar..;) En ætla nú bara að stoppa stutt þar sem hann Jói minn lendir um tíu leytið annað kvöld!:D Svo erum við að fara til Aarhus strax á fimmtudaginn til Beggu og Klemmu og verðum þar yfir helgina, get ekki beðið sko eftir að hitta þau öll!:D Svo kemur Jónína 16. ágúst og mamma og co. 18. ágúst og svo ég bara heim 23. ágúst. Váá hvað það verður gaman á næstunni!!:haha: Nýjar myndir frá spassa kvöldinu mikla eru komnar inn…:P:klikk:

Bæjó!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.07.2005 16:41:49 / rakelr

Noj noj noj !!

Minni bara tókst að láta svona mynd á bloggið!! Ég er nebblega með mac sko og það er erfiðara en maður heldur að eiga við hann;)
En í tilefni þess læt ég vona fína mynd af mér og Svönu skvís:haha:



Og ef einhver hérna er Mac-a nörd og kann að gera svona litaða stafi og sonna þá endilega let me know!;)

Smell you later!:haha:

» 92 hafa sagt sína skoðun

26.07.2005 17:28:42 / rakelr

Fótós!!

Nokkrar nýjar myndir!!:haha:

Undir heitinu c)Danmörk:!::!:

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.07.2005 15:38:02 / rakelr

Smá blogg í tilefni dagsins!

Kristbjörg skvís var hjá mér yfir helgina. Og eg fékk íslenskt nammi!!!:haha: Heilan helling af því, váá hvað það er gott!!
Við afrekuðum alveg helling yfir helgina! Byrjuðum nottlega bara strax á föstudeginum í að fara í búðir. Kíktum á Strkið og það var sko verslað!! Ekki ég nottlega, ég horfði bara á og lét mig dreyma! Ég held að manneskjan hafi keypt sér svona fimm pör af skóm!! Og leddara og ætlar að láta mig kaupa annan og koma með heim handa sér.. Dísús kræst, pælið í því að hafa ekkert að gera við peningana sina;)!!

Well audda þarf maður að sýna gestunum næturlífið í kóngsins Köben. Við byrjuðum kvöldið heima hjá moi og elduðum dýrindis máltíð a la Rakel. Veil, Sonjið og Heiða vinkona þeirra létu svo auðvitað sjá sig og sýndu listir sínar með háþróðum dansi; FUGLADANSINUM!!:haha::haha: Hlustuðum á íslenska tónlist og borðuðum íslenskt nammi, haha.. Svo hélt leiðin á Lades þar sem Kristbjörg var að missa sig yfir ógeðslegum klósettum á staðnum og Veil og co. í fugladansinum! En ég var of þreytt til að geta hreyft mig, enda mín búin að vaka í heilan hellings sólarhring!

Laugardeginum var eytt, í búðum. Strikið, Fisketorvet og RUDE!!8) Sem btw er sniiildar búð, klikkuð flott föt þar og var að byrja útsala!!! Míns svo þangað eftir mánaðarmótin!!:D Um kvöldið fórum við svo, ég, Kristbjörg, Svana, Sigrún og Rannveig á Hard Rock café!! Það var svoo gaman, fengum okkur kokteila, geðveikan jarðaberja kokteil, sveittan hnulla hamborgara og annað góðgæti mmm… Svo vorum við svo hrikalega saddar að engin nennti almennilegu djammi, og þar sem það var rokk kvöld á staðnum okkar og enginn annar staður, SEM VIÐ FUNDUM, virtist spennó héldum við snemma heim, slappt!! 8|
Á sunnudaginn fórum við í Bakken og þar var sko stuðið!!!:D

Hehe í gærkvöldi fór ég í náttfataparty til Völu og co. Keyptum okkur gott að borða og hellings nammsi. Svo var það bara koddaslagur á g-strengnum, hoho!!;) Svaka stuð og gistum allar í klessu, vöknuðum svo eldhressa kl 5 í morgun til að fara í vinnuna!!
Vá Vala og Sonja bara að fara heim á morgun!! Þetta er búið að vera alltof fljótt að líða, trúi ekki að þær skuli bara yfirgefa mig eins og ekkert sé… :( :klikk:
En það er sona ca. mánuður í mig, þarf að farað drífa mig að ákveða dag.
Núna er ég að bíða eftir að heyra í Jóa með hnútinn í maganum, því hann er að farað vera í þarna Clint Eastwood myndinni og er núna í klippingu og e-ð!! Hann verður annaðhvort krúnurakaður eða svona rakaður í hliðunum með lubba ofan á hausnum. Bæði verra sko:!::!:

En fleiri myndir eru að koma inn… mjög bráðlega..

Bæjó!! :klikk::klikk:

» 100 hafa sagt sína skoðun

21.07.2005 15:29:20 / rakelr

Minnz er lasin...:(

Það er ömurlegt að vera veikur!! Sérstaklega í útlöndum þegar það er enginn pabbi eða mamma eða Jói til að hjúkra manni og dekra við mann;) Ég er með allt, hálsbólgu, hósta, hausverk, beinverki, kvef og pottþétt örugglega hita! Arrrggg… pirr pirr!
En ég er samt búin að mæta alltaf í vinnuna, nema í dag samt. Vaknaði í morgun mjög illa haldin og örugglega ekki búin að getað andað í alla nótt sökum stíflaðs nefs.8| Svana min ætlar að fara á eftir og kaupa fyrir mig UNDRALYF!! Svo ætla ég bara að taka það og kabúmm vera hress á nýjan leik.:haha: Því hún Kristbjörg er að koma Á MORGUN og hva helduru að maður geti eikkað verið veikur með gesti. Ææ Kristbjörg mín farð þú bara ein á Strikið ég þarf að leggja mig. Neibb gengur sko alls ekki! Málið bara að hrista þetta af sér!8|
Svo var Sara Dís að pæla að koma, hana langar svo obboslega til þess, flugin reyndar soldið dýr núna í ágúst en samt alltaf gaman að skella sér til Danmerkur..:D Jói er svo að koma aftur 3. ágúst og þá ætlum við til Aarhus í heimsókn til Beggu og Guðna og Emmu Klemmu! Vááá hvað ég get sko ekki beðið eftir að hitta þau, sakna þeirra svo obboslega mikið..!:cry: Og mamman mín og fjölskylda eru svo að koma 18. ágúst en svo kem ég heim með þeim 22. ágúst, líklegast, allavega þar í kring..:D Ég er farin að hlakka mjög til að koma heim, þó það sé geggjað hér þá get ég ekki beðið eftir að verða aftur ósjálfstæð pabbastelpa;) Og að einher annar eldi kvöldmatinn minn og þrífi af mér og sonna… aaahhh hvað það verður nice…:haha: Svo bara að geta talað íslensku aftur útí búð, dísús …. Og audda að hitta alla vinina:D

En ég ætla að sökkva mér aftur í veikindalífið mitt; Sex and the city, m&m, hálstöflur, vibba te og rúmið mitt… Þreytandi til lengdar!!
Vá hvað þetta var óspennandi blogg;) Sorry maður, hef bara ekkert að gera og verð bara að tjá mig!;) En svona er líf sjúklings óspennandi;) Passiði ykkur lömbin mín að klæða ykkur vel og taka inn vítamín!!
Og ekki fara berfætt útí úrhelli eins og bloggarinn gerði;)

» 10 hafa sagt sína skoðun

19.07.2005 20:53:15 / rakelr

Hellúúúú...

NÝJAR MYNDIR!!!!
MYNDIR FRÁ SÍÐASTA MÁNUÐI HÉR ÚTI Í KÖBEN!!:D:D

En helgin var nokkuð skemmtileg!! Á föstudaginn fór ég til Völu og Sonju, fullt af fólki, Unnur systir hennar Völu og Dagur kærasi hennar, Valdi, Maggi, Svana og Danni "frændi";) Við grilllluðum pulsur og náðum meirasegja að brenna þær svona rosalega vel:lol: En svo þegar við vorum öll orðin soldið þreytt þurftum við nú að lífga upp á líðinn og þá kom Danni með þetta snilldar spil sem heitir Mafían. Mjöög svo skemmtilegt spil:lol: En svo um tvö leytið skelltum við okkur í bæinn, og dönsuðum af okkur rasgatið til 5!! Þvílíkt fjör!;)
Svo á laugardaginn kom Sigrún til mín og Birna stuttu seinna og elduðum við okkur bragðlaust pasta, sem reyndist svo gefa frá sér þessa gífurlegu ælu lykt að allir sem komu inn í íbúðina þetta kvöld settu bara upp viðbjóðis svip:lol: En við vorum heima hjá mér bara að sötra og skemmta okkur konunglega:D Addi hennar Völu kom nóttina áður, hafði pantað flugið tveimur tímum áður en hann flaug í loftið;) Vala alveg í sjöunda himni! En svo fóru allir í bæinn um 3 leytið en ég og Svana og Sigrún beiluðum og fórum bara að sofa, nema Svana sem vakti og horfði á O.C:D
Well sunnudagurinn fór svo bara í mikið nammi át og O.C!;)

Nú sitjum við Svana á LAUNDROMAT CAFÉ, kaffihúsinu hans Frikka Weiz, sem er bara nokkuð flott sko!!:D

En þetta verður ekki lengra núna,
bæjó:!::!::lol:

» 9 hafa sagt sína skoðun

16.07.2005 18:18:07 / rakelr

Til hamingju Jói!

Varð nú bara að koma þessu að því ég er svo stolt af kallinum mínum!!:D

Hann var að fá tilnefningu fyrir besta leik í aukahlutverki í áhugamannaleikhúsi:D:D

TIL HAMINGJU JÓI MINN!!!:D

» 111 hafa sagt sína skoðun

16.07.2005 13:27:55 / rakelr

MYNDIR!!!!!!

Myndir frá Mallorca 2005 eru komnar inn!:D:D:D Myndir héðan frá Danmörku á næstu dögum!

ENJOY:!::!::!:

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2005 13:32:29 / rakelr

Je my name is Rakes !!

Sæl litlu lömb:) Allt gott að frétta af mér eins og sona oftast. Eitt sem bara er að toppa vikuna hjá mér; ég er komin í helgarfrí, jibbbííííí!!! Fæ að sofa út zZzZZzZ….;)
En hvað er ég búin að vera að stússast síðustu daga, látum okkur nú sjá..
Á þriðjudaginn fórum ég og Jói á Bakken í góða veðrinu. Algjörir aumingjar því við fórum ekki í nein tæki!!:S Jói eyddi öllum sínum peningum í að reyna að vinna bangsa handa mér og það tókst svo, meirasegja TVOOO!!:D:D
Hey já vá, þegar við komum útá lestarstöð svo á leiðinni heim, þá var bara lestin sem átti að fara í bæinn ekkert að ganga.. Jæja við redduðum okkur og hoppðum uppí DSB lest, en fréttum svo að nokkrar lestir hættu að ganga því það hoppaði gaur fyrir lestina!! Oojjj og það var verið að skafa hann upp af teinunum!! JAKK!!!8|

En svo á miðvikudaginn eftir að ég skutlaði Jóa í flugvélina sína fór ég niðrí Fields að hitta Svönu, Sigrúnu og Eddu. Við tókum svo lest niðrí bæ og hittum Magga og Gunna og kiktum á kaffihús. Sátum þar alveg heillengi bara að spjalla og HLÆJA því þetta eru nottlega algjörir spassar og alltof fyndnir!:haha::haha:

Maggi kærasti hennar Sonju og Valdi vinur hennar Völu voru að koma og í gær fórum við öll á Hard Rock. Vala var þvílíkt búin að tala um e-ð kjúlla salat sem átti víst bara að vera delicious, amm það var nokkuð gott!!:D Svo héldu þau í tívolíið, míns bara týmdi ekki að borga sig inn svo ég fór bara að hitta Svönu mina.
Hehh það var ógeðslega fyndið hverju ég lenti í á Strikinu þetta kvöld. Við vorum bara að rölta í okkar mestu makindum þegar við sáum risa hóp framundan að hlæja og klappa búin að safnast kringum einhver kall. Jæja forvitnin greip okkur og við litum á þetta. Þá var þetta gaur að leika sér með eld og e-ð sonna voða flott og ýkt fyndinn gaur sko! Okey svo tók hann fimm kassa og raðaði þeim lóðrétt upp og ætlaði að standa upp á þeim öllum. En auðvitað þurfti gaurinn aðstoðarmann og hvern haldiði að hann hafi valið, júbb auðvitað mig!!8|;) Well ég vildi nú helst hlaupa í burtu en sagði nú bara what the fuck, geri mig að smá fífli það drepur mann ekki;) En jamm hann tók mig til sín og kynnti mig audda, may I introduce, the one, the only, the gorgeous, RAKES!!! Je excuse me my name is RakeLLL. Nei nei lét það nú bara vera. En þá átti ég sko að stiga fram með dansspor!! Jehh þetta var rosa gaman, ég var þarna með honum í einhverju svaka atriði rauð eins og rós í framan:^:lol:
Svönu fannst þetta líka rosa fyndið! Hohoho…:haha:

Jamm en planið í kvöld er sko geggjað! Ég fer seinnipartinn til Völu og Sonju og við ætlum að farað kaupa okkur gott á grillið og grilla svo úti! Svo er Valdi sko að læra þjóninn og er geggjað góður í að gera koktila svo við ætlum að kaupa e-ð gott og hann ætlar að sýna okkur hvað hann getur;) Við verðum alveg slatti mörg, e-ð um 8 manns, svo það verður fjör á bænum.. Svo verður ferðinni heitið í bæinn á Cocktail barinn og svo bara tekið upp dansskóna og dansað langt inn í nóttina.:haha:

Well ætlað farað horfá O.C. eða eikkað, REmBIngSkoSs!!!

Bæjó!

BTW: Sorry hvað bloggin mín eru alltaf litlaus og ekki mikil augnayndi;) Er nebblega með Mac-a og þá er þetta pínu öðruvísi og ekki eins easy að gera sona liti og sonna..
Og myndir koma inn um helgina, tíu fingur upp til Guðs!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2005 18:31:02 / rakelr

c",)

Sprengingarnar í London, sprengingar í Köben?? Ég las nú bara á mbl að DANMÖRK væri líklegast til að verða fyrir árás, og það er ekki hvort heldur HVENÆR!!!8| Það er allavega ekkert búið að fara framhjá manni að Danir séu súper varkárir þessa dagana. Löggur útum allt sko, á öllum lestarstöðum með skammbyssur í vasanum og allt virðist voða grunsamlegt;) Svo var Norreport station, MÍN lestarstöð! rýmd um daginn þvi það fannst víst einhver duló poki, og það sama gerðist fyrir utan Amalíuborgarhöllina allt útaf einhverjum pokadruslum. Svo er maður að heyra um fólk sem ætlar sko ekki að taka lest eða metro á næstunni. Getur maður eitthvað sleppt því!!:$

En vá ég fékk e-mail frá konu í Landsbankanum sem var að spurja mig útí einhverjar færslur af VISA kortinu mínu sem var stolið, ræningjanum hafði víst tekist að nota kortið í kortasíma!!!:evil::frown: Ég er bara að vona að ég þurfi ekki að borga þetta, að það sé einhver trygging eða som?? Þetta voru alveg nokkrir bláir peningar og maður er sko blankur núna!! Ooohh hlakka til að fá útborgað!

En jebbs ekki búin að vera duleg síðustu daga.. að blogga! En bara búið að vera svo allt á fullu. Jói kom á þriðjudaginn í síðustu viku og fer svo heim á miðvikudaginn, við erum búin að gera svo mikið skemmtilegt.:D:D Svona smá frá dagskrá síðustu daga;) Fórum sko á besta veitingahús í …. Sem heitir Jensens bofhouse oo það var svoo gott! Og ekkert smá ódýrt nebblega!! Fengum okkur sko steik og Brownie í dessert;) jamm mamma, I know!;) Svo forum við í stærstu nammibúð í Danmörk, á tveimur heilum hæðum!! UUmmm þvílíkt sukk líf!:haha:
Við fórum líka í Fisketoret og í bíó á War of the Worlds, varð fyrir vonbrigðum með hana!!
Ströndin er búin að njóta samveru okkar soldið oft, enda búið að vera crasy veður, talandi um 28 stiga hita! Það er rosalegt! Keyptum okkur meirasegja olíu!!8)8) Svo kíktum við í Kristianiu í dag, hef aldrei komið þangað svo maður varð að kíkja þangað. Þetta var ágætt svosem bjóst við einhverju svakalegra og meira..:^)

Helgin var svohljóðandi: Föstudagskvöldið fór í peningaþunglyndi og kaffihús með Jóa og Svönu þar sem óheppnin elti okkur á röndum.. Á laugardagskvöldinu forum við í smá fyrir fyrir hjá Völu og Sonju og svo í bæinn góða þar sem ég og Jói fengum okkur kjúlla og forum svo á A-bar og hittum Sigrúnu, Magga, Eddu, Gunna og Svönu. Þau voru ekki löt við danssporin:haha::haha:
Rosalega var svo gott að sofa út um helgina;), en svo var vaknað aftur klukkan 5 í morgun!!
Er komin á nýjan stað í vinnunni minni. Er bara ein með sjálfri mér sem er fínt, hef þetta þá bara eins og mér sýnist!;) En djös vesen er skattakerfið í Danmörku. Starfsfólkið sem er a ð vinna hjá skattinum sem á að vita allt og kunna því það er að vinna þar!!! ..veit ekkert í sinn haus!:| Ég er búin að fara þrisvar og aldrei til sömu kellunar og hef alltaf fengið mismunandi skattkort og mismunandi skýringar … Nú þarf ég að redda mér leigusamningi sem ég þarf örugglega bara að falsa eða eikkað til þess að fá nógu gott skattkort! AArrggg…:!::klikk:

Hvort segiru á ensku; ANANAS eða EINENES ??

Hhhhhmmmm pælið veeeel í því!!!:$

HoHoHo!! PINEAPPLE!!:haha::haha:

Þó nokkuð margir sem falla fyrir þessu! Jú í alvörunni, I know!!:lol: Nefni engin nöfn;);)

EEnnn ég LOFA myndum fyrir vikulok!! Jói er að redda þeim, þær eru svo allt of stórar svo ég þarf að minnka þær og vesen, en hvað gerir maður ekki fyrir ykkur!!

Bæbæ, Rakel:D

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2005 20:51:56 / rakelr

Halloo..

Ekki mikið krassandi til að láta á bloggið akkurat núna. Er bara heima núna að tölvunördast, allir bara eitthvað sofandi voða þreyttir.. Ég hitti Völu og Sonju í vinnunni i morgun og bara geðveikt gaman hjá þeim á Roskilde!:D Hefði svo verið til í að kíkja þangað kannski eina nótt. En mest er ég svekkt yfir að komast ekki til eyja! Váá hvað ég hefði ekki trúað því hvað þetta er hrikalega gaman, áður en ég upplifði þetta!!:haha::haha: En eyjar fara ekki langt (vonandi!8|) þannig count me in á næsta ári!!
En greyið Vala litla lumma og Sonja þær voru svoo þreyttar og huhumm myglaðar;) Þær eru svo bara að fara heim bráðum:cry: Þrjár helgar eftir hjá þeim. Næsta helgi er svona eilega síðasta helgin þeirra sem er eitthað hægt að hanga með þeim. Helgina eftir það er Maggi hennar Sonju hér og þá verða þær turtildúfurnar bara heima að hafa það kósý,nema Vala ætlar þá að krassa hérna hjá mér og við gerum eitthvað saman, erum að spæla að fara á Sigurrós tónleika hérna úti þá helgi. En svo helgina eftir það ætla þær yfir til Svíþjóðar. Svo við ætlum að gera eitthvað geðveikt skemmtilegt saman næstu helgi, Bakkann, Torgið og næturlífið á Norrebro, Kokteilbarinn og ég veit ekki hvað og hvað:lol::lol:
En jamm ég og Svana tókum röltið í dag og röltum allar hliðargötur og sona litlar götur a Strikinu. Við vorum alveg búnar eftir daginn sko, alltof heitt og roslaega mikið af fólki og krökkum sem voru að koma frá Hróarskeldu og ætluðu að eyða síðustu krónunum sínum í HM! En keypti nú ekki mikið í þetta skipti, hálsmen, armband og eyrnalokka bara, er rosaleg í skartinu hérna úti.:$ ;) En kom svo heim og rotaðist algjörlega! Svo eldaði ég mér súpu, er ekkert smá dugleg í eldhúsinu héna úti:D En sólin er víst ekki eilífð því miður, á morgun á að farað dropa og fram á föstudag. Vona nú að Jói fái að sjá einhverja sólarglæðu á meðan hann er hér úti!;)
En smá tilkynning!
Guðný elskan á afmæli í dag, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN GUÐNÝ!!:P:P

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.07.2005 17:19:39 / rakelr

Í Köben er gott að djamm og djúsa...

Ég er farin að halda að ég sé bara á Mallorca, veðrið er klikkað!:lol: Ég og Svana erum búnar að fara á ströndina núna tvo daga í röð. Fórum í gær á Bella e-ð strönd hjá Bakken og lágum þar til 8!! Farið að vera soldið kalt þá en gott að vera pínu þrjóskur;) En í dag fórum við á Islands Brygge. Það var ógeðslega mikið af fólki þar sleikjandi sólina!'8)' Við tókum bara með okkur nesti og gerðum picnick úr þessu;)
En gærkvöldð já, það var soldð skondið:D Við buðum þarna tveimur Svíum heim til mín þar sem ég er ein með þetta risa pleis alla helgina:D Við ætluðum bara að hafa það kósý fyrst og elda og sona (Ég og Svana) og bara gera okkur reddy í rólegheitunum! En svo fékk ég sms um átta leytið frá GUSTAV og hann var að spurja hvenær þeir mættu kíkja. Ég sagði bara að ég myndi láta hann vita hvenær þeir mættu koma og sagði honum í leiðinni heimilisfangið. Já okey svo stuttu seinna, við varla búnar að klæða okkur bara inná baði að mála okkur, nýkomnar úr sturtu þegar sænska gúrúið hringir! Hann: Hæ ertu inná baði? Ég bara what og leit útum baðherbergisgluggann og sá engann. Hann: Hehe ekki þarna líttu í hina áttina. Liggur ekki bara gaurinn á eldhúsglugganum mínum í gúddí fíling:!::!::evil:
Hvaða heilþroska ÍSLENDINGUR myndi t.d. gera sona!'8|' Æ vá ég samt hætti ekki að hlæja að þessu um kvöldið þeir voru svo hrikalega hallærislegir!!:haha: Annar þeirra var held ég soldið sona gling gló;) En fljótlega komu Karen stelpan sem býr með Svönu og Birna, Fríða og Barði sem eru ýkt fínir krakkar sem við kynntumst um daginn. En jæja við drulluðum okkur svo fljótlega í bæinn og stungum þá af.:klikk: Fórum á mjög lofsamaðan bar sem heitir Lates, alveg fínn staður sosem:P
Hehe svo þegar við komum aftur heim hafði gling gló gleymt símanum sínum og vildi sko koma að ná í hann!! neibb ekki séns! En ég neyðist víst til að hitta þá aftur til að láta þá fá símann8| jæks!
Planið í kvöld er svo að elda aspas súpu og hvítlauksbrauð mmm;) og fara svo til Birnu og co. Hún þarf vist að losa ísskápinn sinn við þrjá kassa af bjór!:haha::haha: Svo bærinn!
En Svo er kallinn minn að koma bara á þriðjudaginn, change of planes víst;)
En ég er obboslega þreyttur núna svo ég ætlað leggja mig smá fyrir tjúttið.
BLESS!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti